12 vikna sónar
+2
holle
litlaF
6 posters
Blaðsíða 1 af 1
12 vikna sónar
Er einhver búin að panta tíma? Ég fékk beiðni hjá kvennsanum fyrir sónarnum en fannst eitthvað svo snemmt að panta strax, er komin 8v3d, vitið þið hvort það sé löng bið eftir tíma niður á kvennadeild?
litlaF- Fjöldi innleggja : 42
Join date : 07/09/2015
Re: 12 vikna sónar
Er ekki búin að panta, ætla að panta eftir snemmsónarinn. Veit ekki alveg með hvort það sé löng bið, en mig minnir að ef hafi verið mjög tímanleg í að panta á síðustu meðgöngu.
holle- Fjöldi innleggja : 13
Join date : 05/09/2015
Re: 12 vikna sónar
Sælar.
Ég ætla hafa samband fljótlega varðandi 12 vikna sónar/líkindamat. Hef bara ákveðin glugga hvaða tímarammann varðar þar sem við förum erlendis um þetta leyti. Vil því frekar bóka með góðum fyrirvara.
Þekki ekkert hvernig þetta virkar í dag með biðtíma þannig væri gott að heyra frá ykkur sem þekkið og eins þá hvort maður geti komið með óskir um tíma:)
Ég ætla hafa samband fljótlega varðandi 12 vikna sónar/líkindamat. Hef bara ákveðin glugga hvaða tímarammann varðar þar sem við förum erlendis um þetta leyti. Vil því frekar bóka með góðum fyrirvara.
Þekki ekkert hvernig þetta virkar í dag með biðtíma þannig væri gott að heyra frá ykkur sem þekkið og eins þá hvort maður geti komið með óskir um tíma:)
Maí - 2016- Fjöldi innleggja : 15
Join date : 07/09/2015
Re: 12 vikna sónar
Var einmitt að spá hvort það væri of snemmt að bóka núna, ég á að fara í byrjun nóv og er smá hrædd um að ég verði of spennt eftir að ég bóka tímann hehe.. en spurning hvort ég bóki ekki bara í næstu eða þarnæstu viku
maibumba- Fjöldi innleggja : 21
Join date : 06/09/2015
Re: 12 vikna sónar
Held það sé örugglega bara allt í góðu lagi að bóka tímanlega...ber bara vott um gott skipulag og gríðarlegan spenning
Maí - 2016- Fjöldi innleggja : 15
Join date : 07/09/2015
Re: 12 vikna sónar
Ég er komin 7v4d og ég er búin að panta í 12vikna og líkindamat + blóðprufu, fer 26.okt og er að kafna úr spenning Kvennsi sagði að það væri alveg gott að gera þetta tímalega. Er einnig búinn að bóka í fyrsta tíma hjá ljósmóðir uppá heilsugæslu sem fer fram 16.okt
Farþeginn- Fjöldi innleggja : 2
Join date : 22/09/2015
Re: 12 vikna sónar
Ég pantaði bara tíma, fer 21. október og er núna að springa úr spenning Virtist ekki vera mjög erfitt að fá tíma hjá þeim á þessum tíma, enda er maður kannski svolítið snemma í því
litlaF- Fjöldi innleggja : 42
Join date : 07/09/2015
Re: 12 vikna sónar
ég á nú 2 börn fyrir en er alveg búin að gleyma hvernig þetta virkar með 12 vikna sónarinn. Þarf maður beiðni frá lækni til að fara í sónar eða er hægt að hringja bara upp á deild og panta... eða hvert hringir maður? Og hvenær fer maður aftur í mæðravernd....
kv. þessi sem man ekki hvernig þetta var hin tvö skiptin
kv. þessi sem man ekki hvernig þetta var hin tvö skiptin
kúrý- Fjöldi innleggja : 10
Join date : 01/10/2015
Re: 12 vikna sónar
kúrý skrifaði:ég á nú 2 börn fyrir en er alveg búin að gleyma hvernig þetta virkar með 12 vikna sónarinn. Þarf maður beiðni frá lækni til að fara í sónar eða er hægt að hringja bara upp á deild og panta... eða hvert hringir maður? Og hvenær fer maður aftur í mæðravernd....
kv. þessi sem man ekki hvernig þetta var hin tvö skiptin
Þú þarft beiðni frá kvennsjúkdómalækni eða ljósmóður í mæðravernd. Getur samt pantað tíma án hennar, en þarft að vera komin með hana áður en tíminn er. Ég er að fara í fyrsta tímann í mæðravernd á þriðjudaginn þá komin 10v3d, pantaði hann fyrir ca. 2 vikum. Best að hringja bara í þær í mæðraverndinni hjá þér og spjalla við þær
litlaF- Fjöldi innleggja : 42
Join date : 07/09/2015
Similar topics
» Mæðravernd og 12 vikna sónar
» 12 vikna sónar búinn
» 12 vikna sónar og líkindamat búið :)
» Jæja búin í 12 vikna sónar :D
» Seinkað í sónar.
» 12 vikna sónar búinn
» 12 vikna sónar og líkindamat búið :)
» Jæja búin í 12 vikna sónar :D
» Seinkað í sónar.
Blaðsíða 1 af 1
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum
|
|