Stress fyrir snemmsónar!
3 posters
Blaðsíða 1 af 1
Stress fyrir snemmsónar!
Er búin að vera rosalega slæm í verkjum síðustu daga að eg endaði með að færa snemmsonarinn úr 14.okt í 2.okt fyrir helgi, svo um helgina voru verkirnir það slæmir að eg þurfti að einbeita mer að anda á meðan svo eg hringdi og fékk tima a morgun. Það hefur ekki komið neitt blóð en ég er samt að fríka út og finnst einsog þetta séu ekki eðlilegir verkir. Verkirnir eru ekki stanslausri heldur koma og fara en eru mjög vondir, fæ lika verki ef eg stend hratt upp eða beygi mig eitthvað asnalega... Kannast einhver við þetta? Er eg að hafa óþarfa áhyggjur ? Eg a að vera komin ca 6v og 3d i dag....
Vona allavega það besta á morgun! :/
Vona allavega það besta á morgun! :/
maíkríli2016- Fjöldi innleggja : 13
Join date : 16/09/2015
Re: Stress fyrir snemmsónar!
Það er eðlilegt að finna fyrir verkjum eins og túrverkir það eru togverkir og geta þeir verið mis slæmir,getur líka fengið tog hjà mjöðmini sem er alveg eðlilegt.yfirleitt er talið að það sè allt í góðu lagi svo lengi sem að það er ekki að blæða fersku blóði en ekki algilt. Vona allt það besta fyrir þig og gangi þér vel à morgun
Re: Stress fyrir snemmsónar!
Mjög slæmir vindverkir eru líka eðlilegir â þessum tima þat sem að það hægist à meltinguni og myndast þar með meira loft. Ég hef fengið svo slæma að ég næ varla að anda nè hreyfa mig.
Re: Stress fyrir snemmsónar!
Ég var alveg að drepast úr verkjum í ca 2 vikur. Svo svakalegir bakverkir og verkir í kvið að ég lagðist í fósturstellingu og reyndi að anda í gegnum þá. Þeir komu í ca 4-6 köstum á dag og stóðu í ca 15-30 mín. Hræðilegt tímabil, átt alla mína samúð. Ég tengdi þetta svo við ristilinn vegna breytinga á meltingunni. En ég tók paratabs við verstu verkjunum og það sló á þá.
maís- Fjöldi innleggja : 22
Join date : 08/09/2015
Blaðsíða 1 af 1
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum
|
|