Einkenni á þessum tíma
+3
kjammi
Norgegella
maibumba
7 posters
Blaðsíða 1 af 1
Einkenni á þessum tíma
Hæhæ
Mig langar smá að vita hvernig einkennin ykkar eru núna um þessar mundir. Erum líklega flestar í kringum 9-13 viku
Ég er komin 12 vikur á morgun og finnst einkennin fara mjög minnkandi, ógleðin er búin að minnka svakalega, brjóstaspennan er reyndar enn til staðar ásamt þreytunni og ég finn stundum fyrir togverkjum þegar ég stend hratt upp.. Ég er orðin smá stressuð útaf því ógleðin virðist hafa horfið frekar skyndilega :/ Hvernig er þetta hjá ykkur dömur?

maibumba- Fjöldi innleggja : 21
Join date : 06/09/2015
Re: Einkenni á þessum tíma
10 vikur hér og er að drepast úr ógleði og þreytu. Er með brjóstaspennu líka og brjóstsviða. Hef lítið fundið fyrir togverkjum en meltingin er öll í rugli. Endalaust loft og leiðindi
Norgegella- Fjöldi innleggja : 12
Join date : 27/09/2015
Re: Einkenni á þessum tíma
Rúmlega 11 vikur hjá mér. Ógleðin hefur minnkað töluvert en kemur þó ennþá aðeins á kvöldin. Ennþá túr verkir reglulega og verkir í brjóstum. Líka loft i maga hér
kjammi- Fjöldi innleggja : 16
Join date : 11/09/2015
Re: Einkenni á þessum tíma
11 vikur á morgun, ógleðin er nánast farin en er ennþá endalaust þreytt með brjóstaspennu og meltingaróþægindi, loft og leiðindi.
Rannsan- Fjöldi innleggja : 11
Join date : 21/09/2015
Re: Einkenni á þessum tíma
Ég er alveg einkennalaus myndi ég segja....Var líka þannig á síðustu meðgöngu. Mögulega hafa brjóstin aðeins stækkað.
maí26- Fjöldi innleggja : 9
Join date : 28/09/2015
Re: Einkenni á þessum tíma
11 vikur à morgun, var flýtt um 5 daga, fòr aftur ì snemmsónar ògleđin nànast horfin, sem var ekki mikil fyrir, brjòstaspennan ađ hverfa en þreytan er ađ drepa mig enn loft ì mèr og endalaust stìfluđ ì nefinu....annars allir happy hèr
mandlan- Fjöldi innleggja : 13
Join date : 24/09/2015
Re: Einkenni á þessum tíma
Ég er komin rúmar 9 vikur og er ennþá að drepast úr ógleði og þreytu.. finnst samt brjóstaspennan aðeins vera að minnka..
incinta- Fjöldi innleggja : 5
Join date : 12/10/2015
Blaðsíða 1 af 1
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum
|
|