Er farið að sjást eitthvað á ykkur??
+9
litlaF
kúrý
maís
mimba
preggylady
Norgegella
Sigrag
bland
Ratatoskur
13 posters
Blaðsíða 1 af 1
Er farið að sjást eitthvað á ykkur??
Ég finn voðalega lítið fyrir þessarri meðgöngu. Þrátt fyrir að ég hafi séð hjartsláttinn í snemmsónarnum þá á ég voða bágt með að trúa þessu.
Ég hef heyrt að það sjáist oft fyrr á þeim sem hafa gengið með áður, ég á 2 fyrir. En ég hef líka alltaf verið með smá maga eftir þær meðgöngur, húð sem hefur ekki gengið saman. Svo ég sé svosem engan mun á mér. En í kvöld er ég alveg extra útblásin og fólk myndi örugglega telja mig vera ólétta.
Er komin 9 vikur og 4 daga

Ratatoskur- Fjöldi innleggja : 14
Join date : 07/09/2015
Re: Er farið að sjást eitthvað á ykkur??
Ég er komin með 10v og 2 d og er að ganga með mitt 3 barn ! Ég er í miklum vandræðum með að fela bumbuna mína !!!! er uppiskroppa um hvað föt ég á að fara í og enda alltaf í sömu fötunum :S
bland- Fjöldi innleggja : 4
Join date : 25/09/2015
Re: Er farið að sjást eitthvað á ykkur??
Ég er komin 9v og 5d og er að ganga með mitt annað barn og er í nákvæmlega sömu stöðu. orðin fá fötin sem ég get farið í svo bumban sjáist ekki
Sigrag- Fjöldi innleggja : 11
Join date : 27/09/2015
Re: Er farið að sjást eitthvað á ykkur??
Neibb, ekkert farið að sjást á mér enda svo sem ekki komin nema einhverjar 7 vikur En það hefur alltaf sést seint á mér hvort sem ég er grönn eða með aukakíló þannig að ég verð örugglega ekki í neinum vandræðum með að fela þetta fyrr en upp úr 20. viku
Norgegella- Fjöldi innleggja : 12
Join date : 27/09/2015
Re: Er farið að sjást eitthvað á ykkur??
10v5d er með smá kúlu og er oftast í íþróttabuxum eða leggings, hef lagt gallabuxurnar alveg til hliðar
preggylady- Fjöldi innleggja : 15
Join date : 06/09/2015
Re: Er farið að sjást eitthvað á ykkur??
Ég er farin að finna mun á mér þó aðrir myndu kannski ekki endilega sjá að þetta er óléttubumba er komin 7v2d og á einn þriggja ára fyrir. Hlakka til að geta farið að skarta kúlunni í þröngum bolum og finnst allt of langt í 12 vikurnar!
mimba- Fjöldi innleggja : 6
Join date : 10/10/2015
Re: Er farið að sjást eitthvað á ykkur??
Tæpar 11 vikur hér og finn vel fyrir að fötin eru orðin þrengri, þarf að endurskoða daglega fataskápinn Finnst samt misjafnt hversu útstæður maginn er.
maís- Fjöldi innleggja : 22
Join date : 08/09/2015
Re: Er farið að sjást eitthvað á ykkur??
Það hefur ekki sést á mér fyrr en um 20 vikur með hin tvö...en mér finnst ég mjög misútblásin....ef ógleðin er mjög slæm tútna ég hreinlega út, en ekki þannig að fólki detti í hug að ég sé ólétt.
kúrý- Fjöldi innleggja : 10
Join date : 01/10/2015
Re: Er farið að sjást eitthvað á ykkur??
Á kvöldin er ég með risa bumbu, tútna alveg út eins og ég sé komin 5 mánuði! Hef verið í smá vandræðum með að finna föt, asnaðist í þröngan bol í vinnuna um daginn og mér fannst allir vera að glápa á mig! En ég er komin 12v núna í þessari viku svo það er ekki langt í að ég geti farið að sýna þetta
litlaF- Fjöldi innleggja : 42
Join date : 07/09/2015
Re: Er farið að sjást eitthvað á ykkur??
Ég er komin rúmar 11 vikur og það sést held ég ekkert á mér.. er að ganga með 4. barn.
Mæja- Fjöldi innleggja : 5
Join date : 10/09/2015
Re: Er farið að sjást eitthvað á ykkur??
Jâ og ég er með mikla bumbu fyrir (17manuðir à milli barnana minna) en þessa dagana og frà 7 viku sirka er ég búin að vera ein og útblàsin blaðra. Vinnufötin að springa af mér,margar bunar að sp mig hvort að ég sè ólètt eða seigja jæja hvenar ætlaru að seigja okkur :/ harðneita öllu sem er frekar erfitt séstaklega þar sem að það eru nokkrar í vinnuni óléttar að tala um sina ólèttu og ég get ekkert sagt :') 12 vikna sónar 3.Nóv get ekki beðið. S.s þriðja barn 9v5d í dag.
Re: Er farið að sjást eitthvað á ykkur??
úff 9 vikur komnar með fyrsta barn og ég tútna út... efast samt um að aðrir taki jafn mikið eftir því og ég en mér finnst ég bara búin að vera að fitna síðan ég tók prófið... sérstaklega slæm á kvöldin. Er ansi sátt með víðu fötin sem eru "inn" í dag
missdoria- Fjöldi innleggja : 7
Join date : 21/10/2015
Re: Er farið að sjást eitthvað á ykkur??
Ég er komin 11+1 núna og finnst aðeins farið að sjást á mér, svo óþægilegt þar sem maður er ekki farinn að segja neinum.. Fólk verður bara halda að ég sé að fitna eða sé útþanin alla daga, er samt mjög dugleg við að ganga í víðu en finnst það samt þurfa að vera mjög vítt svo það sjáist ekkert. Annars tekur maður örugglega mest eftir þessu sjálfur.
Ég get ekki beðið eftir að geta farið að vera í þröngum fötum og vera komin með alvöru kúlu
Ég get ekki beðið eftir að geta farið að vera í þröngum fötum og vera komin með alvöru kúlu
maibumba- Fjöldi innleggja : 21
Join date : 06/09/2015
Re: Er farið að sjást eitthvað á ykkur??
12v6d og sést ekkert á mér
preggylady- Fjöldi innleggja : 15
Join date : 06/09/2015
Blaðsíða 1 af 1
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum