Morgunógleði
+4
maibumba
maís
Norgegella
Maíbarn
8 posters
Blaðsíða 1 af 1
Morgunógleði
Skil þetta nafn ekki ógeðin byrjat hjà mér kringum 16 leitið og versnar bara þangað til að èg fer að sofa sem er ömurlegt þar sem að ég vinn à kvöldin :/ hvenar eru þið verstar?
Re: Morgunógleði
Ég er skást frá 11 til svona 15. Ég er reyndar ekki mjög slæm, ég æli aldrei neitt. Er bara að andast úr ógleði
Norgegella- Fjöldi innleggja : 12
Join date : 27/09/2015
Re: Morgunógleði
Ég hef ekkert kastað upp en var með velgju og netta ógleði allan daginn fram á ca. 8-9 viku. Þá fóru einkennin mjög minnkandi og núna er ég komin tæpar 11 vikur og er aðallega þreytt. Fékk smá áhyggjur af því að einkennin minnkuðu en ætla ekki að velta mér of mikið upp úr því þar sem það er ekkert sem ég get gert, verður það sem verða vill.
maís- Fjöldi innleggja : 22
Join date : 08/09/2015
Re: Morgunógleði
Þetta er mjög villandi nafn, ég er alveg á öllum tímum sólarhringsins.. Stundum frá því ég vakna og alveg þar til ég fer að sofa með smá hléum, stundum bara á morgnanna og fyrri part dags og aðra daga er mér óglatt seinnipart og á kvöldin. Ég hef alltaf bara verið með þvílíka ógleði en er nýbyrjuð að æla, er búin að æla tvisvar að morgni til og einu sinni rétt fyrir svefn þetta er alveg óþolandi, sérstaklega þegar þetta hittir á vinnutíma
maibumba- Fjöldi innleggja : 21
Join date : 06/09/2015
Re: Morgunógleði
Ég er með stanslausa ógleði. Vakna a næturnar því mer er svo óglatt, næ þa að troða ofaní mig sma banana eða svo, sofna svo og vakna aftur milli 7-8 og er óglatt allann daginn ! Þetta er ógeðslega þreytandi! Er búin að prófa öll trix sem fólk hefur bent á en það slær bara á ógleðina i mesta lagi i 1 klst
LitlaMaiBaun- Fjöldi innleggja : 12
Join date : 07/09/2015
Age : 32
Re: Morgunógleði
Ég er bara ekki með neina ógleði og það liggur við að mér þyki það óeðlilegt. Hefur komið fyrir að ég finni fyrir smá velgju, en ég get varla talað um það, það er svo lítið.
Ratatoskur- Fjöldi innleggja : 14
Join date : 07/09/2015
Re: Morgunógleði
Ég fékk enga ógleði à seinustu meðgöngu, öfunda þig!Ratatoskur skrifaði:Ég er bara ekki með neina ógleði og það liggur við að mér þyki það óeðlilegt. Hefur komið fyrir að ég finni fyrir smá velgju, en ég get varla talað um það, það er svo lítið.
Re: Morgunógleði
Oh hvað eg öfunda ykkur sem eruð ekki að æla! Eg er gjörsamlega rúmliggjandi! Held engu niðri og get ekkert borðað og ef eg kem mer i vinnuna er eg 50% af þeim tima inna klósetti! Er flökurt allan sólarhringinn alla daga og fer versnandi sem liður a meðgönguna!! :'( hafið þið heyrt um preggo pops eða eitthvað? Ætti maður að splæsa i svoleiðis?? :/
maíkríli2016- Fjöldi innleggja : 13
Join date : 16/09/2015
Re: Morgunógleði
Ég er að deyja úr ógleði, er óglatt allan daginn, er verst á morgnana og á kvöldin, hef ekki ælt en líður oft eins og ég sé alveg að fara að æla og lyktarskynið er að drepa mig. Ég þarf að hitta margt fólk á dag og allir með mismunandi lykt sem fer illa í mig og ég er bara uppgefin eftir vinnudagana og hringdi mig inn veika í dag því ég bara meika ekki að fara í vinnuna. Mér finnst fátt slá á ógleðina og ef ég fæ klukkutíma break þá verð ég tvöfalt verri á eftir. Þetta er bara eins og stanslaust torture....en get borðað amk e-ð svo ég er þakklát fyrir það. Þegar ég gekk með eldra barnið gat ég ekkert borðað svo ég var verri þá......ekki það mér finnst ég alveg nógu slæm.
Varðandi preggo pops þá prófaði ég þá þegar ég gekk með eldra barnið mitt og þeir slógu e-ð minimalt á, en þetta eru bara sleikjóar með smá engifer bragði og ég hefði þá þurft 20 sleikjóa á dag því þetta dugði bara á meðan ég var með hann upp í mér. En svo er enginn eins...
Varðandi preggo pops þá prófaði ég þá þegar ég gekk með eldra barnið mitt og þeir slógu e-ð minimalt á, en þetta eru bara sleikjóar með smá engifer bragði og ég hefði þá þurft 20 sleikjóa á dag því þetta dugði bara á meðan ég var með hann upp í mér. En svo er enginn eins...
kúrý- Fjöldi innleggja : 10
Join date : 01/10/2015
Blaðsíða 1 af 1
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum
|
|