Fyrsti tíminn í mæðravernd
+2
maibumba
litlaF
6 posters
Blaðsíða 1 af 1
Fyrsti tíminn í mæðravernd
Ég var að koma úr fyrsta tímanum mínum í mæðravernd úff hvað mér fannst það mikill léttir Ég var einhvernveginn búin að vera viss um að það væri eitthvað að af því að einkenninn hjá mér voru að minnka. Ljósunni fannst það nú bara fullkomlega eðlilegt og svo af því að heilsugæslan mín býr svo vel að vera með sónartæki fékk ég að kíkja á krílið. Það var ekkert smá gaman að sjá það hoppa og skoppa, sá litlar hendur og fætur og litla hjartað alveg á milljón Nú get ég ekki beðið eftir 12 vikna sónarnum eftir 2 vikur
litlaF- Fjöldi innleggja : 42
Join date : 07/09/2015
Re: Fyrsti tíminn í mæðravernd
ooo en gaman! æðislegt
maibumba- Fjöldi innleggja : 21
Join date : 06/09/2015
Re: Fyrsti tíminn í mæðravernd
Gaman að heyra að allt sé í góðu, það er svo æðislegt að sjá hjartsláttinn
emg110- Fjöldi innleggja : 11
Join date : 21/09/2015
Re: Fyrsti tíminn í mæðravernd
Frabært
hvaða heilsugæslustöð býr svona vel?
hvaða heilsugæslustöð býr svona vel?
kjammi- Fjöldi innleggja : 16
Join date : 11/09/2015
Re: Fyrsti tíminn í mæðravernd
Heilsugæslan í mosfellsbækjammi skrifaði:Frabært
hvaða heilsugæslustöð býr svona vel?
litlaF- Fjöldi innleggja : 42
Join date : 07/09/2015
Re: Fyrsti tíminn í mæðravernd
Ertu ánægð i Mosfellsbæ ? Eg bý i moso en færði mig i heilsugæsluna i Grafarvogi eftir að eg las a netinu svo neikvætt um þær i Moso :/
maíkríli2016- Fjöldi innleggja : 13
Join date : 16/09/2015
Re: Fyrsti tíminn í mæðravernd
Já, ég er mjög ánægð núna og var það líka þegar ég átti strákinn minn.maíkríli2016 skrifaði:Ertu ánægð i Mosfellsbæ ? Eg bý i moso en færði mig i heilsugæsluna i Grafarvogi eftir að eg las a netinu svo neikvætt um þær i Moso :/
Ingigerður var með mig seinast, hún er ekki allra(t.d. var vinkona mín alls ekki að fíla hana) en mér fannst hún rosalega fín, sá líka um mig í heimaþjónustunni og hún algjörlega bjargaði brjóstunum á mér, en hún er líka brjóstagjafaráðgjafi. Núna er ég með Kristrúnu og ég held að flestir sem ég þekki fíli hana rosalega vel, hún er rosalega ljúf og góð og hlustaði alveg á allt sem ég var að segja. Ég mundi hiklaust mæla með þeim, en heilsugæslan er líka svo lítil að það er svona frekar persónulegt umhverfi og mér finnst það frábært Svo er bara auka plús að það sé sónartæki á staðnum, Kristrún sagði við mig að ef ég hefði áhyggjur eða eitthvað gæti ég komið og við myndum bara kíkja á krílið. Mér fannst það vera rosalega róandi
litlaF- Fjöldi innleggja : 42
Join date : 07/09/2015
Re: Fyrsti tíminn í mæðravernd
En skemmtilegar fréttir
Ég lendi í þeirri sérstöku aðstöðu að fara í fyrsta tímann í mæðravernd líklega gengin nær 14 vikum;) Ástæðan er sú að við verðum erlendis frá 12. viku en þá eigum við tíma í 12 vikna sónar með líkindmatinu og dugar það til. Er líka svo heppin að hafa gott aðgengi að læknum innan fjölskyldunnar og þegar búin að fara í snemmbúnar blóðprufur sem voru glimrandi fínar. Annars allt í góðu gengi hjá þér þeirri gömlu;)
Ég lendi í þeirri sérstöku aðstöðu að fara í fyrsta tímann í mæðravernd líklega gengin nær 14 vikum;) Ástæðan er sú að við verðum erlendis frá 12. viku en þá eigum við tíma í 12 vikna sónar með líkindmatinu og dugar það til. Er líka svo heppin að hafa gott aðgengi að læknum innan fjölskyldunnar og þegar búin að fara í snemmbúnar blóðprufur sem voru glimrandi fínar. Annars allt í góðu gengi hjá þér þeirri gömlu;)
Maí - 2016- Fjöldi innleggja : 15
Join date : 07/09/2015
Blaðsíða 1 af 1
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum
|
|