Aulaskapur
3 posters
Blaðsíða 1 af 1
Aulaskapur
Alveg klassík fyrir mig. Er búin að vera að drepast úr kvefi síðustu 6 vikur. Stöðugt með hor í hálsinum og hóstandi út frá því, svaka stuð og fer vel við massívu ógleðina. En allavega, ég keypti mér einhvern ægilega sniðugan hálsbrjóstsykurspakka áðan. Er búin með 3 mola úr honum þegar ég rek augun í að þetta er ekki ætlað óléttum kellum Skil reyndar ekki ástæðuna, ekkert í þessu sem virðist hættulegt Hvernig losna ég við þetta ógeðselga meðgöngukvef?
Norgegella- Fjöldi innleggja : 12
Join date : 27/09/2015
Re: Aulaskapur
Borða sterkt,fà þér hunangs/sítrónu vatn volgt,borða hràan hvítlauk og eða setja hvítlauksrif í nasirnar í smà stund. Ég veit að flest nefsprey mà ekki vegna nikotíns og mig minnir strepsils brjóstsykrarnir líka.
Re: Aulaskapur
Að borða sterkt gerir ekkert fyrir þetta, ég elska sterkt og borða það því oft Er ekki búin að prófa hvítlauk í nefið x) Vandinn er bara að þetta er í rauninni í hálsinum á mér meira en nefinu :/
Norgegella- Fjöldi innleggja : 12
Join date : 27/09/2015
Re: Aulaskapur
Ojj meðgöngukvefið er horror! Hef alveg sloppið núna fyrir utan ENDALAUST stíflað nef. En þegar ég var ólétt af fyrra barni fann ég mikið fyrir þessu, hafði einmitt alltaf átt strepsils cold sem eru snilld fyrir slím í hálsi, en auðvitað mátti ég ekki taka þá. Ég held ég hafi prófað allar náttúrulækningar í bókinni, en fannst virka best að drekka mikið af vatni(ég var alltaf með vatnsflösku við höndina) og svo drakk ég líka mikið af sítrónutei með hunangi. Í dag er besta kvefráðið sem ég veit að fá mér go away doc djús á Joe & the juice!
litlaF- Fjöldi innleggja : 42
Join date : 07/09/2015
Re: Aulaskapur
Ó já, ég fann lausnina. Sá link á fésbókinni í gær um að ananas væri snilld gegn hósta. Ég elska ananas þannig að ég rauk út í búð í gærkvöldi og keypti mér eitt stikki. Og já, ég hóstaði mun minna í gærkvöldi og nótt og slímköggullinn í hálsinum á mér er mun minni núna
Norgegella- Fjöldi innleggja : 12
Join date : 27/09/2015
Blaðsíða 1 af 1
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum
|
|